Vilhelm Patrick Bernhöft Atvinnuhúsnæði · RE/MAX

Sala og útleiga atvinnuhúsnæðis

Vilhelm Patrick Bernhöft

Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari sem þekkir atvinnuhúsnæði frá sjónarhóli eigandans — sem stjórnandi hjá Eik fasteignafélagi hf., ráðgjafi fasteignasjóða og fjárfesta.

Ræðum þína eign Eignir á skrá
Vilhelm Patrick Bernhöft
2004 Í atvinnuhúsnæði frá
10 ár Hjá Eik fasteignafélagi hf., 2004–2014
MBA Háskólinn í Reykjavík
2009 Löggiltur leigumiðlari

Þjónusta

Skrifstofur, verslunar-, lager- og iðnaðarhúsnæði. Ég hef setið báðum megin borðsins — sem leigusali, fjárfestir og miðlari — og veit hvað skiptir máli fyrir báða aðila.

Útleiga

Markaðssetning á lausu húsnæði, leit að traustum leigutökum, samningaviðræður um leigukjör og gerð leigusamninga.

Sala

Sala atvinnuhúsnæðis, hvort sem það er laust eða í útleigu — frá verðmati og kynningu fyrir kaupendum og fjárfestum til kaupsamnings og afsals.

Verðmöt

Verðmöt atvinnuhúsnæðis vegna sölu eða fjármögnunar, byggð á leigutekjum, markaðsleigu og samanburði við sambærilegar eignir.

Fyrir hverja

Eigendur og fasteignafélög

Sem vilja leigja út eða selja húsnæði og fá fyrir það rétt verð og trausta leigutaka.

Fjárfestar

Sem eru að kaupa eða selja atvinnuhúsnæði og vilja mat á leigutekjum, áhættu og raunhæfu verði.

Fyrirtæki í leit að húsnæði

Sem þurfa skrifstofu, verslun eða lager. Segðu mér hvað þú þarft og ég læt þig vita af því sem passar.

Um mig

Ég hef starfað við atvinnuhúsnæði frá 2004. Í tíu ár hjá Eik fasteignafélagi hf. sá ég um markaðsmál, leigusamninga og samskipti við leigutaka, síðast sem framkvæmdastjóri eignasviðs. Síðan hef ég sinnt ráðgjöf og fjárfestingum fyrir fasteignasjóði og eigin félög.

Ég hef sjálfur fjárfest í atvinnuhúsnæði og íbúðum og átt fjölda eigna í útleigu. Ég veit því hvað eigandi þarf að vita áður en hann skrifar undir — og hvað leigutaki og kaupandi spyrja um.

  1. 2019– Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari hjá RE/MAX
  2. 2014– Ráðgjöf og fjárfestingar fyrir fasteignasjóði og fasteignafélög, meðal annars við uppbyggingu sjóðs í atvinnuhúsnæði
  3. 2012–2014 Framkvæmdastjóri eignasviðs, Eik fasteignafélag hf.
  4. 2004–2012 Sérfræðingur, Eik fasteignafélag hf. — markaðsgreiningar, samningagerð, húsfélagamál og viðhaldsáætlanir
  5. 2011–2013 MBA frá Háskólanum í Reykjavík, með áherslu á stjórnun, fjármál og samningatækni

Algengar spurningar

Hvað gerir fasteignasali við útleigu atvinnuhúsnæðis?

Hann metur markaðsleigu, markaðssetur húsnæðið, finnur og kannar mögulega leigutaka, semur um leigukjör og gengur frá leigusamningi. Markmiðið er rétt leiguverð og traustur leigutaki til lengri tíma.

Hvernig er atvinnuhúsnæði verðmetið?

Verðmæti atvinnuhúsnæðis ræðst einkum af þeim leigutekjum sem það getur skilað. Horft er til núverandi leigusamninga og markaðsleigu, lengdar samninga og trausts leigutaka, staðsetningar, ástands eignarinnar og sambærilegra viðskipta.

Gilda húsaleigulögin um atvinnuhúsnæði?

Já, en ákvæði húsaleigulaga nr. 36/1994 eru frávíkjanleg þegar um atvinnuhúsnæði er að ræða og gilda aðeins ef aðilar hafa ekki samið um annað (2. gr.). Þess vegna skiptir vandaður leigusamningur enn meira máli við atvinnuhúsnæði en íbúðarhúsnæði.

Er hægt að selja atvinnuhúsnæði sem er í útleigu?

Já. Nema samið hafi verið um annað þarf ekki samþykki leigutaka, og kaupandi tekur við réttindum og skyldum leigusala (42. gr. húsaleigulaga). Seljandi þarf að tilkynna leigutaka um söluna innan 30 daga frá undirritun kaupsamnings (43. gr.). Eign með traustum leigusamningi getur verið eftirsóknarverð fyrir fjárfesta.

Ég er að leita að húsnæði fyrir fyrirtækið mitt. Get ég haft samband?

Já. Segðu mér hvers konar húsnæði þú þarft, stærð og staðsetningu, og ég læt þig vita af eignum sem passa.

Hvað kostar þjónustan?

Þóknun fer eftir umfangi verkefnisins og er samið um hana fyrir fram. Hafðu samband og ég geri þér tilboð.

Hafa samband

Ertu með atvinnuhúsnæði til sölu eða leigu, eða að leita að húsnæði fyrir reksturinn? Sendu mér línu og ég hef samband við fyrsta tækifæri.

663 9000 vilhelm@remax.is RE/MAX · Skeifunni 17, 108 Reykjavík

Upplýsingarnar eru aðeins notaðar til að svara erindinu. Persónuverndarstefna